Algengar spurningar um MáM þjálfunina
Fyrir hvern er MáM þjálfunin?
Markaðsþjálfun er fyrir alla þá sem vilja bæta markaðsmálin hjá sér, ná í góða viðskiptavini og auka hagnað rekstursins, á hagkvæman og hagnýtan hátt. Þeir sem einkum njóta góðs af henni eru:
- Markaðsfólk sem vill fá praktíska aðferðafræði til að fylgja eftir
- Fyrirtæki með fámenna markaðsdeild, jafnvel bara einn í markaðsmálunum, og viðkomandi vill fá stuðning til að bæta markaðsstarfið
- Þeir sem sjá um markaðsstarfið innan fyrirtækja sem ekki eru nógu stór til að réttlæta ráðningu sérfræðings til að sjá um markaðsmálin
- Frumkvöðlar og einyrkjar sem ekki hafa sérfræðiþekkingu á sviði markaðsmála og vilja fá bara það sem þarf og á mannamáli
Hvernig virkar MáM þjálfunin?
MáM þjálfunin gefur þér aðferðirnar, tækin og tólin til að byggja upp öflugt markaðsstarf á hagkvæman hátt, án þess að festast í fræðilegu hlutunum. Hún er hagnýt og hagkvæm - þú færð akkúrat það sem þú þarft, skref fyrir skref. Þú þarft ekki að hafa neina þekkingu á markaðsfræðunum fyrir - en hinsvegar er MáM einnig gagnlegt fyrir þá sem hafa markaðsfræðilega þekkingu en vilja læra meira um hagnýt atriði og ýmis vinnubrögð í markaðsstarfinu. MáM byggist á hugmyndafræðinni að ef þú gefur manni fisk þá fæðirðu hann í einn dag, en ef þú kennir honum að veiða þá fæðirðu hann alla ævi. Markaðsstarfið er hjarta fyrirtækisins. Það er markaðsstarfið sem nær í viðskiptavinina og án þeirra er maður ekki lengi í rekstri ;)
Í MáM er gríðarleg áhersla lögð á að leggja góðan grunn að markaðsstarfinu með greinargóðri markhópagreiningu, samkeppnisgreiningu og með því að byggja upp sterkt brand. Grunnurinn er 80% af markaðsstarfinu og gerir hin 20% margfalt áhrifaríkari. Allt of mörg fyrirtæki eyða púðri í ýmsar markaðsaðgerðir sem skila þeim litlu eða engu vegna þess að grunnurinn er ekki til staðar.
Pam Didner, Global Integrated Marketing Strategist hjá Intel Corporation, sagði þegar hún var beðin um að spá fyrir um þróun mála í netmarkaðssetningu fyrir árið 2015: "The major change for 2015 is NOT about digital marketing. The major change will come from Marketers by Going Back to Basics: reevaluate the target audience, determine what works and what doesn’t. Re-prioritize and be smart about resource allocation and investment."
Síðan er sett saman markaðsprógramm byggt á þessum grunni og því sem hentar viðkomandi að öðru leyti. Í framhaldinu er þjálfunarefni fyrir hinar ýmsu markaðsaðgerðir, tól og tæki auk þess sem áhersla er lögð á að koma skipulagi á markaðsstarfið, svo að það gangi eins og vel smurð vél og nái árangri án þess að gera mann gráðhærðan ;)
Þjálfunarefnið er samsett úr stuttum vídeóum, texta og myndum, allt eftir því hvað hentar best hverju sinni til að koma því til skila. Þú getur séð hér betur hvernig það virkar en það er nú komið í mun betra vefumhverfi en þú sér þarna. Efnið er allt á netinu, þegar þér hentar, og það er alltaf hægt að spyrja almennra spurninga í gegnum netið (allar spurningar og svör eru birt á vefsíðunni) og alltaf hægt að panta tíma í ráðgjöf til að kafa dýpra ofan í það sem við á fyrir hvern og einn, ef þörf er á. Takmarkið er alltaf að viðkomandi verði sjálfstæður hvað varðar markaðsmál fyrirtækisins síns, en aðstoð er ávallt til staðar þegar á þarf að halda.
Hvað varð til þess að ákveðið var að hafa MáM svona?
Stór ástæða er sú að geta boðið þessa þjónustu á verði sem flestir ráða við, en með því að hafa þjálfunina á netinu næst stærðarhagkvæmni sem gerir MáM kleift að bjóða þjálfunina á betri kjörum.
MáM er þróað eftir mikla reynslu af bæði markaðsmálum almennt og af því að starfa með minni aðilum að því að efla markaðsstarfið þeirra. Ég, Þóranna K. Jónsdóttir, hugmyndasmiður MáM, hef verið í markaðsmálum frá því upp úr aldamótum og hef unnið með fyrirtækjum af ýmsum stærðum og gerðum að því að efla markaðsstarfið þeirra um árabil. Þegar ég byrjaði að vinna sjálfstætt byggðist samtarfið á því að hitta viðskiptavinina og leiðbeina þeim. Smátt og smátt fór ég að sjá að margt af því sem ég var að fara yfir var alltaf það sama, og fór að gera efni sem ég lét viðskiptavinina hafa til að fara yfir. Þannig urðu fundirnir árangursríkari og markvissari og viðskiptavinurinn fékk meira út úr vinnunni. Það var því rökrétt framhald að snúa þessu við, gera þjálfunarefnið að kjarna þjónustunnar og veita aðstoð og ráðgjöf til að styðja við það. Þannig er hægt að bjóða þjálfunina á betra verði, þjónusta fleiri og sá tími sem viðskiptavinur kaupir hjá ráðgjafa nýtist mun betur, því þar er verið að fara yfir það sem á sérstaklega við fyrir hvern og einn, í stað þess að eyða tíma með dýrum ráðgjafa í almenn atriði sem auðveldlega er hægt að koma til skila á annan hátt.
Af hverju ætti ég að fá markaðsþjálfun?
Ef þú vilt betra og áhrifaríkara markaðsstarf þá er MáM þjálfunin fyrir þig.
Að auki er markaðsþjálfun fyrir þig ef eitthvað af eftirtöldu á við hjá þér:
- Gerir þú þér grein fyrir því að markaðsstarfið er lífæð fyrirtækisins en veist ekki alveg hvernig þú átt að snúa þér í því?
MáM þjálfunin er hönnuð til að leiða þig í gegnum það sem þú þarft að vita og kunna til að geta keyrt áfram markaðsstarfið hjá fyrirtækinu þínu. Þú þarft ekki lengur að klóra þér í hausnum og snúast í hringi prófandi þetta í dag og hitt á morgun. Fylgdu bara leiðinni og þú kemst þangað sem þú ætlar þér.
- Viltu fá skýra stefnu og skilvirka áætlun til að fylgja eftir í markaðsmálunum?
Þú byrjar á því að leggja niður góðan grunn með markaðsstefnu sem felur í sér greiningu á markhópunum þínum, samkeppninni og byggt á því byggir þú upp brand stefnu sem veitir þér aðgreiningu á markaði.
Þú færð lista yfir þau markaðstól og tæki sem henta þér og þínu fyrirtæki, sem er forgangsraðað svo að þú veist nákvæmlega hverju þú átt að byrja á og hvað kemur næst.
Þú setur markaðsstarfið upp í kerfi, svo að þú veist alltaf hvað þú átt að vera að gera og hvenær, það tryggir samfellt og þar með árangursríkt markaðsstarf.
Þú getur líka fengið fullt af hugmyndum að fleiri hlutum sem þú getur gert í markaðsstarfinu síðar meir, þegar þú ert búin að ná góðum tökum á kjarnamarkaðsstarfinu.
- Er reksturinn þinn ekki farinn að bera starfsmann sem sér um markaðsstarfið en þig vantar ráðleggingar og aðstoð?
Ég þekki það að vera í litlu fyrirtæki og þurfa að vera allt í öllu. Þú getur reynt að verða sérfræðingur í öllu sem þarf að gera í fyrirtækinu, lesið bækur og farið á námskeið o.s.frv. og maður þarf alltaf að hafa grundvallarþekkingu á öllum hliðum reksturins - en maður getur aldrei vitað allt og verið allt. Þess vegna er gott að láta leiða sig í gegnum markaðssetningarferlið. Ég er alsæl í því hlutverki að vera markaðsnördið þitt og ef ég veit ekki eitthvað, þá get ég nokk lofað þér að ég veit um einhvern sem veit það. Þú getur alltaf sent spurningar og fengið svör, og ef þér finnst þú þurfa meira er hægt að panta tíma í ráðgjöf. Þannig hefurðu sérfræðing til taks þegar á þarf að halda, en þarft ekki að bera kostnaðinn af honum þegar ekki er þörf.
- Vilt þú ná hámarksárangri í markaðsstarfinu með lágmarks fyrirhöfn og fjármagni?
Aðferðafræði MáM grundvallast á skæruliðamarkaðssetningu, en kjarnaatriði í henni er að ná sem mestum árangri með sem minnstum tilkostnaði og fyrirhöfn. Árangur er ekki mældur í sölu heldur í hagnaði - það er auðvelt að selja eins og brjálæðingur með því að eyða fullt af tíma og peningum í sölu- og markaðsstarf, en þá situr ekkert eftir. Þess vegna þarf þekkingu, útsjónarsemi og fagmannleg vinnubrögð til að ná sem bestum árangri.
MáM er ekki hluti af auglýsingastofu, almannatengslastofu, vefhönnunarfyrirtæki eða öðru þess háttar. MáM hefur engra hagsmuna að gæta af því að beina þér í aðra átt en þá sem er rétt fyrir fyrirtækið þitt. Í tengslaneti MáM er hinsvegar fullt af góðu fólki með reynslu og þekkingu á hinum ýmsu sviðum markaðsstarfs svo það er alltaf hægt að koma þér í gott samband og mæla með topp fólki ef óskað er eftir því.
- Hefur þú metnað fyrir hönd fyrirtækisins þíns og vilt reka það á sem fagmannlegastan og áhrifaríkastan hátt?
Ef þú heldur að það sé hægt að ná árangri í markaðsstarfinu bara með vinstri og án þess að leggja nokkuð á sig, þá verð er best að þú áttir þig á því strax að það er ekki hægt. Það er ekki til neinn markaðsálfur sem bara veifar sprotanum og "abrakadabra" það eru komnir viðskiptavinir. Það þarf mikla vinnu, þolinmæði, stefnufestu og tíma - og það borgar sig að gera hlutina vel frá byrjun - það getur sparað heilmikla vinnu og tíma síðar og þú nærð fyrr árangri. Ef þú gerir þér grein fyrir því og vilt gera hlutina almennilega, þá ertu á réttum stað.
- Viltu hætta að reyna að finna upp hjólið og stytta þér frekar leið að árangri í markaðsmálunum?
Þá ertu á réttum stað ;)
Einfaldasta leiðin að fara í gegnum MáM þjálfunina á netinu. Þjálfunin er byggð á þekktum staðreyndum úr markaðsfræðunum og “best practice” aðferðum. Það er þróað í samstarfi við fjölda lítilla íslenskra fyrirtækja og einyrkja og er í stöðugri þróun til að verða enn betra. Í MáM þjálfuninni færðu skref-fyrir-skref leiðbeiningar um hvernig best er að gera hlutina, fara stystu og áhrifaríkustu leiðina og fara að njóta afrakstursins fyrr og með minni fyrirhöfn.
Hvað tekur þjálfunin langan tíma?
MáM Bootcamp er keyrsla í 7-8 vikur en markaðsstarfinu lýkur náttúrulega aldrei ;) Hversu langan tíma tekur að koma markaðsmálununum þínum í gott horf fer allt eftir því á hvaða stað þú ert til að byrja með, hversu flókinn reksturinn þinn er, vöruúrval og þjónusta, og hversu dugleg(ur) þú ert að vinna í markaðsmálunum þínum. Við hvert og eitt þjálfunarprógramm geturðu séð hvað áætlað er að taki langan tíma að fara í gegnum efnið. Hitt er annað mál, að þetta er einfaldlega verkefni sem þú getur ekki látið sitja á hakanum ef þú ætlar að gera eitthvað úr fyrirtækinu þínu - þannig að hvort sem þú vinnur það með MáM eða öðrum, þá þarftu að vinna það ;)
Hvenær fer prógrammið næst af stað?
Skráðu þig á póstlistann og þá færðu að vita þegar næst verður opnað fyrir aðgang ;)
Af hverju er keyrt svona stíft í gegnum efnið?
Svarið við því er einfalt. Til að gefa þér tímamörk og veita þér aðhald. Mannskepnan er einfaldlega svoleiðis að við gerum yfirleitt ekki hlutina fyrr en það er kominn ákveðinn þrýstingur (ef þig langar að fræðast meira um þetta þá mæli ég með bókinni Linchpin eftir Seth Godin þar sem hann talar um eðluheilann okkar og af hverju við þurfum yfirleitt pressu til að klára ;) ... ef ég gæfi þér allan tímann í heiminum til að dóla þér í gegnum þetta, þá myndi mjög líklega lítið gerast. Með því að keyra þétt í gegn þá er líklegra að þú kýlir á þetta og vinnir vinnuna. Þú getur svo haldið áfram að fínstilla og þróa áfram í framhaldinu þar sem þú hefur alltaf aðgang að efninu ;)
Getur MáM séð algjörlega um markaðsmálin fyrir mig?
MáM er markaðsþjálfun og ætlað að gera þig sjálfbjarga með markaðsstarfið þitt. Ég (Þóranna) vinn nánar með fyrirtækjum ef svo ber undir. Þú getur kynnt þér þjónustu mína á vefsíðunni minni, thoranna.is. Það er þó alltaf dýrari kostur heldur en að vinna vinnuna sjálf(ur) með hjálp MáM og MáM þjálfunin er alltaf grunnurinn að vinnunni okkar saman.
Þó að þú fáir mig, eða aðra, til að vinna í markaðsmálunum með þér þá er líka alltaf mikilvægt að þú hafir þekkinguna á þínum markaði og markaðsmálum og að þú sért við stjórnvölinn. Markaðsmálin eru einfaldlega of mikilvæg til að kaupa þau almennt annarstaðar að inn í fyrirtækið. Þú getur keypt ýmsa þjónustu, en kjarninn og stjórnin verður að vera hjá þér. Með því að þú vinnir vinnuna með leiðsögn og aðstoð frá MáM verður þú mun betur í stakk búin(n) til að stýra fyrirtækinu þínu, hefur markaðsmálin mun betur í puttunum og árangurinn verður mun betri. Þekkingin og reynslan af markaðsmálunum geymist þá líka innan fyrirtækisins og nýtist þar til framtíðar. Þetta er þitt fyrirtæki, þú átt að hafa ástríðu fyrir því og án góðs markaðsstarfs eru engir viðskiptavinir - og ekkert fyrirtæki.
Ég er úti á landi - get ég samt fengið markaðsþjálfun og -ráðgjöf og hvernig fer það þá fram?
Já, það er það sem er svo yndislegt við internetið - þú getur verið hvar sem er í heiminum ef því er að skipta! ;) Þjálfunin er öll á netinu og ráðgjafartímar eru veittir í gegnum Skype eða Google Hangout :)
Er þetta ekki bara markaðsráðgjöf? - hvað er öðruvísi við þetta?
Markaðsráðgjöf getur verið hluti af MáM þjálfuninni þegar og ef við á, en MáM er þjálfun, ekki ráðgjöf. Markaðsráðgjafi vinnur fyrir þig og þekkingin og reynslan af þeirri vinnu hverfur að mestu leyti úr fyrirtækinu ef ráðgjafinn hættir hjá þér. Hefðbundin ráðgjöf er svolítið eins og að fá lánaðar glósur hjá einhverjum öðrum frekar en að mæta sjálf(ur) í tímann og glósa - það situr svo miklu meira eftir ef maður mætir. Markaðsþjálfunin tryggir að þekkingin og reynslan geymist og nýtist til fullnustu innan fyrirtæksins auk þess sem þjálfunarefnið, og möguleikinn að spyrja almennra spurninga, er alltaf til staðar svo lengi sem áskriftin er virk. MáM er því einnig mun hagkvæmari kostur en hefðbundin markaðsráðgjöf.
En ég hef ekki tíma í þetta! Hvað þá?!
Fyrir markaðsstarfið þá þarftu annað hvort tíma eða peninga. Ef þú hefur peningana til þess að ráða þér starfsmann til að sjá um markaðsmálin, eða markaðsráðgjafa, já eða mig, þá er um að gera að drífa í því (en þú þarft alltaf að hafa grundvallar þekkingu og skilning og stýra þessu hjarta fyrirtækisins). Ég býð m.a. upp á að vinna nánar með þér til að taka markaðsmálin í gegn - sjá thoranna.is. Hinsvegar er gott markaðsfólk og góðir ráðgjafar, sem kunna til verka, ekki á hverju strái og kosta sitt. Ef þú hefur ekki fjármunina í það, þá er tíminn þinn og orka hinn gjaldmiðillinn sem þú hefur til að efla markaðsstarfið. Þú getur ekki gert ekki neitt: Ekkert markaðsstarf = engir viðskiptavinir = enginn rekstur. Það er bara ekki flóknara en það.
Gefðu þér hálfan eða einn dag í viku á meðan á Bootcamp keyrslunni stendur, til að vinna verkefnin úr MáM þjálfuninni samviskusamlega og sinna markaðsstarfinu, og svo reglulegan tíma í framhaldinu, og þú munt ekki sjá eftir því ;)
Hver er munurinn á markþjálfun og markaðsþjálfun?
Markaðsþjálfun snýst eingöngu um markaðsmál þín og fyrirtækisins þíns, ekki um þig persónulega. Til að útskýra hinsvegar markþjálfun fæ ég lánað af vef Opna háskólans um markþjálfun:
"Markþjálfun miðar að því að virkja getu og laða fram kjörframmistöðu einstaklinga í lífi og starfi. Með öflugri samtalstækni, matstækjum og eftirliti gerir markþjálfun einstaklingum kleift að nýta sem best faglega þekkingu sína og persónulegan styrk við úrlausn viðfangsefna. Markþjálfun fyrir stjórnendur er einkaþjálfun sem miðar að því að stjórnendur verði enn hæfari til að setja sér markmið, hrinda í framkvæmd áformum sínum og ná árangri í starfi."
- semsagt, allt önnur Ella ;)
Get ég fengið að ræða málin við þig áður en ég tek ákvörðun?
Það er sjálfsagt mál að spjalla saman í símann, yfir Skype eða Google Hangout, ef þú vilt ræða málin frekar áður en þú tekur ákvörðun. Bjallaðu í 841 5800 (skildu endilega eftir skilaboð ef ég svara ekki - ég er oft bundin með viðskiptavinum) eða sendu mér tölvupóst á thoranna@mam.is til að finna tíma sem hentar :)
Get ég unnið með þér persónulega?
Ráðgjafatími hjá MáM á netinu er með mér persónulega. Einnig er mögulegt að vinna nánar saman ef það hentar. Ef þú vilt vinna nánar með mér kynntu þér málið á vefsíðunni minni, thoranna.is, og hafðu samband í thoranna@thoranna.is eða í 841 5800.
Þarf ég að borga í hvert skipti sem ég spyr þig spurningar?
Nei. Á þjálfunarvef MáM er hægt að spyrja almennra spurninga án þess að greiða sérstaklega fyrir það. Ef þú þarft að ræða eitthvað sem á sérstaklega við þitt fyrirtæki, vöru eða þjónustu og þú ert ekki tilbúin(n) að deila með öðrum, geturðu alltaf pantað tíma og þá er greitt sérstaklega fyrir það á mjög hagkvæmum MáM kjörum.
Ertu með einhverjar spurningar sem ekki er svarað hér að ofan?
Endilega hafðu samband: 841 5800 eða thoranna@mam.is Ég hlakka til að vinna með þér í að efla markaðsstarfið þitt! |
|