MaM

Markaðskerfið

Picture
Kíktu á efni í MáM vídeóblogginu sem tengist markaðskerfinu:
  • Endurtekning - lykilatriði í markaðssetningu!
  • Hversu oft?!
  • Markaðsdagatalið

Einnig hluti af:
  • Grunnþjálfun

Stóri hausverkurinn, hvort sem maður er allt í öllu í fyrirtækinu, og markaðsmálin eru ekki það eina sem maður þarf að sinna en  reyndar líka þó það sé það eina sem maður þarf að sinna :)  er að hafa skipulag og yfirsýn yfir markaðsstarfið. Markaðsstarfinu þarf að sinna jafnt og þétt - en hvernig á maður að fara að því? Þetta prógramm kemur markaðsmálunum í topp form, tryggir að þú vitir hvenær þú þarft að gera hvað og hvernig þú getur haldið markaðsvélinni stöðugt gangandi og dælandi til þín viðskiptum.  Markaðskerfið er einnig hluti af grunnþjálfun MáM. 

Hér er fyrsta vídeóið úr prógramminu - kíktu á það til að átta þig á hvers vegna það skiptir máli að koma markaðsstarfinu í skipulag og gott kerfi:
Meðal þess sem við förum yfir í prógramminu er:
  • Hvaða daga og viðburði geturðu notað í markaðsstarfinu þínu
  • Hvaða stóru verkefni þarf að vinna og hvernig er best að skipuleggja það
  • Hvað þarf að gera reglulega
  • Þú setur þetta allt saman upp í markaðsdagatal
  • Þú setur upp verkáætlun
  • Þú lærir hvernig þú getur notað Google Calendar til að halda utan um markaðsstarfið
  • Þú lærir hvernig þú getur hætt að finna upp hjólið og komið hlutunum í skilvirkt kerfi - heldurðu að það verði ekki lúxus að þurfa ekki að hlaupa um eins og hauslaus hæna að reyna að finna næsta markaðstrixið þitt?! ;)

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur rúmlega hálftíma að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir umfangi rekstrar þíns og markaðssetningar.
  • Vinnuskjal sem hjálpar þér að ná yfirsýn og hafa skipulag á hlutunum.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.

Verð
Kr. 21.700,-

Taktu alla grunnþjálfun MáM og fáðu bæði hagstæðara verð og meira til! Kynntu þér málið hér!

Já takk, ég ætla að hætta að hlaupa um eins og hauslaus hæna, 
koma skipulagi á markaðsstarfið mitt og vita nákvæmlega hvað ég ætla að gera og hvenær!
Eitt stykki þjálfunarprógramm um markaðskerfið fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015