MaM
  • New Page

Markhópar

Picture


Kíktu á efni í MáM vídeóblogginu um markhópana:
  • Þú getur ekki selt öllum
  • Draumaviðskiptavinurinn
  • Þú þarft að þekkja og skilja markhópinn þinn
  • Stundum þarftu að reka viðskiptavini

Einnig hluti af:
  • Grunnþjálfun

Við getum ekki talað til allra, svo þú þarft að finna þá sem vænlegast er að selja til og þekkja þá sem allra best. Þannig getur þú náð til þeirra á sem áhrifaríkastan hátt. 

Hér fyrir neðan geturðu séð fyrsta vídeóið úr prógramminu, sem útskýrir akkúrat af hverju við þurfum að gera virklega góða markhópagreiningu:
Það sem við förum yfir í prógramminu er:
  • Hvaða gagn er að því að gera markhópagreiningu - en þú veist það nú, þú ert búin(n) að horfa á vídeóið  ;)
  • Við komum skipulagi á greiningunna og áttum okkur á uppbyggingu markaðarins.
  • Við skoðum hver draumaviðskiptavinurinn þinn er - því að við viljum jú finna fleiri svoleiðis ;)
  • Við skoðum kaupákvörðunarferlið og hvaða áhrif það hefur á markhópagreininguna þína.
  • Ef þú ert með mjög marga mögulega markhópa þá skoðum við hverjir þeirra eru vænlegastir.
  • Við skilgreinum markhópana, hvort sem þeir eru á einstaklings- eða fyrirtækjamarkaði.
  • Við köfum dýpra og kynnumst markhópunum og aukum skilning okkar á þeim, því þannig getum við haft. samband við þá á áhrifaríkari hátt.
  • Við skoðum hver þörf þeirra er og hver ávinningur þeirra er af því að velja okkur því þar liggja sterk markaðsskilaboð.
  • Við skoðum gildi þeirra og lífssýn - þar liggur lykillinn að virkilega sterku sambandi við þau.
  • Við skoðum hvar við náum til þeirra og hvernig best er að ná til þeirra - því annars erum við bara að tala við sjálf okkur.
  • Við setjum fram kaupendapersónuna þína, svo að allir geti skilið fyrir hverja þú ert og geti hjálpað þér að ná til þeirra.
  • Svo skoðum við hvernig við höldum þessari þekkingu kerfisbundið við.

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur um 75 mínútur að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir umfangi rekstrar þíns.
  • Vinnuskjal til að halda utan um upplýsingarnar þínar um markhópana á skipulegan hátt.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.


Verð
Kr. 21.700,-

Taktu alla grunnþjálfun MáM og fáðu bæði hagstæðara verð og meira til! Kynntu þér málið hér!

Já takk, ég ætla að finna markhópana mína og þekkja þá í botn svo ég geti betur náð til þeirra!
Eitt stykki markhópaþjálfunarprógramm fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: [email protected]

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015