MaM

Samkeppnin

Picture
Kíktu á efni í MáM vídeóblogginu um samkeppnina:
  • Að fylgjast með samkeppninni

Einnig hluti af:
  • Grunnþjálfun

Það er nauðsynlegt að þekkja samkeppnina vel.  Í hinni þekktu bók The Art of War segir Sun Tzi: "So it is said that if you know your enemies and know yourself, you can win a hundred battles without a single loss." Ekki að ég sé að líkja þessu við stríð - en við viljum jú verða ofan á, ekki satt? Samkeppnin er einnig hluti af grunnþjálfun MáM.

Hér fyrir neðan geturðu séð fyrsta vídeóið úr prógramminu, sem útskýrir m.a. akkúrat af hverju við þurfum að skoða samkeppnina:
Það sem við förum yfir í prógramminu er:
  • Af hverju að skoða samkeppnina? - þú veist það nú þegar, því þú ert búin(n) að horfa á vídeóið, er það ekki? ;)
  • Hver samkeppnin er - það er oft ekkert augljóst hverja við eigum að flokka sem samkeppnisaðila og hverja ekki
  • Hvað við þurfum að vita um samkeppnisaðilana
  • Hvar við getum komist að upplýsingum um þá
  • Hvernig við getum fengið sem besta yfirsýn yfir þann samkeppnismarkað sem við störfum á
  • Hvernig við getum haldið áfram að fylgjast kerfisbundið með samkeppninni

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur rúmlega hálfa klukkustund að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir stærð og umfangi markaðarins sem þú starfar á og hversu vel þú þekkir samkeppnina og samkeppnislandslagið nú þegar.
  • Prógramminu fylgir vinnuskjal fyrir samkeppnisgreininguna.
  • Ítarlegur listi yfir hvar þú getur fengið upplýsingar um samkeppnina og hvernig þú getur fylgst með henni.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.


Verð
Kr. 21.700,-

Taktu alla grunnþjálfun MáM og fáðu bæði hagstæðara verð og meira til! Kynntu þér málið hér!

Já takk, ég ætla að skoða samkeppnina í kjölinn svo ég geti skotið henni rækilega ref fyrir rass!
Eitt stykki þjálfunarprógramm í samkeppnisgreiningu fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015