MaM

Að ná í fjölmiðlaumfjöllun

Picture

Gott til undirbúnings:
  • Grunnþjálfun
  • Markhópar*
  • Brand stefnumótun* 

*innifalið í grunnþjálfun

Einnig hluti af:
  • Framhaldsþjálfun

Fjölmiðlaumfjöllun er mjög sterkt markaðstól og hún er almennt frí, svo hún hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum mjög vel. Til að ná í hana þarf hinsvegar að ganga markvisst og skipulega til verks og vita hvernig best er að ná í hana. Farið er yfir það helsta sem þú þarft að vita til að geta tekið málin í þínar eigin hendur með skipulögðum hætti og náð í fjölmiðlaumfjöllun sem vekur góða athygli á fyrirtækinu þínu, vöru eða þjónustu. 

ATH! Til þess að þetta prógramm hitti í mark þarftu að þekkja markhópinn þinn vel og hafa skýra brand stefnu. Af hverju?
  • Þú þarft að þekkja markhópinn til að vita í hvaða miðlum er best að ná til hans
  • Þú þarft að vita hverskonar umfjöllun myndi höfða til markhópsins
  • Þó að markhópurinn þinn noti miðil er ekki þar með sagt að hann sé réttur fyrir brandið þitt - þú verður að þekkja brandið þitt og þau áhrif sem fjölmiðlaumfjöllunin hefur á það
  • Þú vilt að umfjöllunin styrki og styðji við brandið sem þú ert að byggja upp - þannig að þú þarft að vita hvaða brand þú vilt byggja upp ;)

Hérna vinstra megin geturðu fengið yfirlit yfir prógrömm sem gagnlegt er að taka áður en farið er í að ná í fjölmiðlaumfjöllun. Að ná í fjölmiðlaumfjöllun er einnig fáanlegt inni í framhaldsþjálfun MáM.

Kíktu hérna á fyrsta vídeóið úr prógramminu til að fá að vita meira um málið:
Það sem við förum yfir í prógramminu er:
  • Hlutverk fjölmiðlaumfjöllunar sem markaðstóls - en þú veist um allt um það því þú horfðir á vídeóið hér fyrir ofan ;)
  • Við hvern á maður að hafa samband?
  • Hvenær rétti tíminn er til að hafa samband og hversu oft
  • Fréttatilkynningar, skriftir og dreifing og þar á meðal dreifing þeirra á netinu
  • Annars konar efni til að ná í fjölmiðaumfjöllun
  • Fjölmiðlapakki, hvað það er og hvernig þú getur nýtt hann, þ.m.t. hinar ýmsu tegundir markaðstexta
  • Hvað svo? - eftirfylgni með fréttatilkynningum og öðrum aðgerðum
  • Hvernig þú getur fengið sem allra mest út úr fjölmiðlaumfjölluninni
  • Efninu fylgir vinnuskjal, sniðmát af fréttatilkynningu með útskýringum og gátlisti yfir hluti sem hægt er að gera til að magna upp fjölmiðlaumfjöllun

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur tæplega klukkustund að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir umfangi markaðssetningarinnar þinnar og ýmsum öðrum þáttum.
  • Vinnuskjal til að halda utan um vinnuna við að ná í fjölmiðlaumfjöllun.
  • Sniðmát af fréttatilkynningu með útskýringum.
  • Gátlisti yfir hluti sem hægt er að gera til að magna upp fjölmiðlaumfjöllun.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.


Verð
Kr. 21.700,-


Já takk, ég vil ganga markvisst til verks og fá fjölmiðlaumfjöllun sem hjálpar mér að ná í viðskipti!
Eitt stykki þjálfunarprógramm í því að ná í fjölmiðlaumfjöllun fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015