MaM

Undirbúningur að vefsíðugerð

Picture
Kíktu á efni úr MáM vídeóblogginu um vefsíðuna:
  • Varstu búin(n) að spá í þessu varðandi vefsíðuna þína?

Gott til undirbúnings:
  • Markhópagreining*
  • Branding
  • Grunnþjálfun

* innifalið í grunnþjálfun

Einnig hluti af:
  • Framhaldsþjálfun

Að hverju þarf að huga þegar farið er í vefsíðugerð? Hvernig getur þú sem best undirbúið þig til að vinnan með vefhönnuði og vefgerðarfólki verði sem árangursríkust, taki sem stystan tíma og verði sem hagstæðust? Markmiðið með prógramminu er að þú getir undirbúið þig sem best fyrir þessa vinnu. Einnig er bent á einfaldar og ódýrar leiðir til að setja upp vef á eigin spýtur.

ATH! Til þess að geta gert sem besta vefsíðu er nauðsynlegt að þekkja markhópana sína vel og vita hvernig brand maður vill byggja upp í huga þeirra sem í þeim eru. Því er mælt með að taka MáM prógrömmin um markhópagreiningu og branding áður en farið er í þetta prógramm. 

Horfðu hérna á fyrsta vídeóið úr prógramminu til að fá að vita meira um málið og hvers vegna er mikilvægt að undirbúa vefsíðugerðina vel:
Það sem við förum yfir í prógramminu er m.a.:
  • Hvað þarf að kaupa, skrá o.s.frv. og hvað er eðlilegt að það kosti
  • Hvert markmiðið er með vefnum
  • Uppbygging vefsins hvað varðar efni og útlit
  • Efnistök og útlit vefsins
  • Samþætting við samfélagsmiðla
  • Vefsíðan þín í snjallsímum og spjaldtölvum
  • Hvernig þú þarft að prófa vefinn
  • Ýmis hjálpartæki og tól fyrir vefsíðuna þína
  • Upplýsingar um vefkerfi sem gera þér kleift að setja vefinn þinn upp sjálf(ur)

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur rúmlega 70 mínútur að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir umfangi vefsíðunnar þinnar.
  • Vinnubók með efninu, þ.m.t. með gagnlegum gátlistum.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.


Verð
kr. 21.700,-


Já takk, ég ætla að undirbúa mig vel undir vefsíðugerðina mína og fá þar með áhrifaríkari vefsíðu á styttri tíma, 
betri kjörum og í ánægjulegra samstarfi við vefhönnuðinn minn!
Eitt stykki þjálfunarprógramm í undirbúningi að vefsíðugerð fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015