MaM

Branding - fáðu fólk til að elska þig!

Picture

Kíktu á efni í MáM vídeóblogginu um brand:
  • Kjarni markaðsmálanna
  • Hvað er brand?
  • Að branda (branding)
  • Eiginleikar brandsins
  • Snertipunktar
  • Hvernig kaupirðu þér andlit?

Gott til undirbúnings:
  • Markhópar*
  • Samkeppnin*

*innifalið í grunnþjálfun

Brand stefnumótun fæst:
  • stakt
  • innfalið í grunnþjálfun


Brand útlit og tónn fæst:
  • stakt
  • innifalið í framhaldsþjálfun

VÆNTANLEGT

Brandið er kjarni markaðsstarfsins þíns. Það er mikilvægasta og áhrifaríkasta einstaka markaðstólið - og það er ekki bara fyrir stór fyrirtæki! Brandið er það sem getur fengið fólk til að elska fyrirtækið þitt, vöru eða þjónustu. Branding snýst um að gera hlutina almennilega - ekki að eyða fullt af peningum. Hvað er brand? Af hverju skiptir það máli? Hvernig byggirðu upp brand og stýrir því? Hvernig tryggirðu áhrifaríkt útlit og tón í brandinu þínu? Hvernig vel ég nafn fyrir fyrirtækið mitt, vöruna eða þjónustuna? o.s.frv...

ATH! Til þess að geta nýtt þetta prógramm almennilega þarft þú að hafa markhópinn þinn og samkeppnina á hreinu. Því er mælt með því að taka MáM prógrömmin um markhópagreiningu og samkeppnisgreiningu áður en farið er í þetta prógramm.

Það sem við förum yfir í prógramminu er m.a.:

Brand stefnumótun
  • Hvað er brand?
  • Naflaskoðun - hvernig er staðan hjá þér í dag?
  • Brand kjarninn - hólfið sem þú ert í
  • Að gefa brandinu karakter
  • Að finna þá brand eiginleika sem þú vilt byggja upp
  • Virði brandsins
  • Hvernig þú getur komið brandinu til skila
  • Hvernig þú getur stýrt brandinu í framhaldinu

Horfðu hér á fyrsta vídeóið um brand stefnumótunina: 
Brand útlit og tónn
  • Undirbúningur fyrir útlitshönnun - hvað þarftu að skoða hjá þér og samkeppninni áður en lagt er af stað
  • Hvað þarf að athuga varðandi lógóið þitt
  • Hvað þarf að hanna og gera, þ.m.t. tillögur að efni sem gæti þurft að vera til í brand útlitinu þínu
  • Hvaða liti viltu hafa og hvað þarf að hafa í huga við litaval
  • Tónn og texti brandsins þins - hvernig talar það og hvaða áhrif hefur það
  • Brand leiðarvísirinn - tól til að tryggja samræmi í brandinu þínu
  • Verklýsing fyrir hönnun - tryggir mun skilvirkara og áhrifaríkara hönnunarferli og betri samvinnu við hönnuðinn þinn
  • Áframhaldandi stjórnun brand útlitsins og tónsins
  • Vinnuskjal og sniðmát fyrir verklýsingu (e. creative brief) fylgir þjálfuninni

Horfðu hér á fyrsta vídeóið um brand útlitið og tóninn:
Nafn
  • Helstu hlutir sem þarf að hafa í huga við val á nafni fyrir fyrirtækið þitt, vöru eða þjónustu
  • Hugarflugsferli fyrir nafnaleit
  • Hvernig þú síar út þau nöfn sem ekki ganga
  • Hvernig þú velur úr þeim sem eftir standa
  • Skráningarhæfi nafna og hvernig þú skráir nöfn

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur um X mínútur að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir umfangi rekstrar þíns og hversu skýra mynd þú hefur fyrir af því hvernig þú vilt að brandið þitt sé.
  • Vinnuskjal sem hjálpar þér að setja brand stefnuna skipulega fram.
  • Vinnuskjal og sniðmát fyrir verklýsingu (e. creative brief) sem nýtist í vinnu með hönnuðum, auglýsingafólki o.fl.
  • Sniðmát fyrir verklýsingu fyrir nafnaleit.
  • Vinnuskjal fyrir síun á nafnahugmyndum.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.

Já takk, ég ætla að byggja upp öflugt, magnað og áhrifaríkt brand
sem fær fólk til að elska fyrirtækið mitt, vöru eða þjónustu!
Eitt stykki branding þjálfunarprógramm frá MáM fyrir mig!

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015