MaM

Efnismarkaðssetning (e. content marketing)

Picture

Kíktu á efni af MáM blogginu um efnismarkaðssetningu:
  • Komdu þér að efninu!
  • Gefðu, gefðu og gefðu meira!
  • Ekki byggja á sandi
  • Sköpun og skipulag

Gott til undirbúnings:
  • Grunnþjálfun
  • Markhópar*
  • Samkeppnin*
  • Brand stefnumótun* ** 
  • Brand útlit og tónn**
  • Branding

* innifalið í grunnþjálfun
** innifalið í branding

Einnig hluti af:
  • Framhaldsþjálfun

Hvaða efni á ég að senda út á Facebook, Twitter, LinkedIn, Pinterest o.s.frv.?  Hvað á ég að blogga um og hvað get ég sent fólki á póstlistanum mínum? Hvernig  get ég búið efnið til? Hvernig get ég gert þetta allt án þess að drukkna?! Markaðssetning í dag snýst stöðugt meira um að dæla út efni sem fólk hefur áhuga á en er um leið að vinna fyrir þig. Þar að auki snýst leitarvélabestun, það að finnast á Google og netinu almennt, sífellt meira um að að vera með gott efni og því er efnismarkaðssetning mikilvægari í dag en nokkru sinni fyrr. Þetta prógramm afhjúpar öll trixin ;)    

Til þess að efnismarkaðssetning verði sem áhrifaríkust þarftu að þekkja markhópinn þinn vel til að vita hvað hann vill og hafa brandið þitt á hreinu, til að vita hvernig þú vilt að fólk upplifi fyrirtækið þitt, vöruna eða þjónustuna en einnig til að tryggja samræmt útlit á efninu þínu. Hérna vinstra megin geturðu fengið yfirlit yfir prógrömm sem gagnlegt er að taka áður en farið er í prógrammið um efnismarkaðssetningu. Efnismarkaðssetning er einnig fáanleg inni í framhaldsþjálfun MáM.

Horfðu hérna á fyrsta vídeóið úr prógramminu til að fá betri hugmynd um hvað efnismarkaðssetning gengur út á og af hverju þú ættir einmitt að fara í gegnum þessa þjálfun til að draga viðskiptavinina að þér og fá þá til að elska þig!

Það sem við förum yfir í prógramminu er m.a.:
  • Nýr veruleiki í markaðssetningu - að draga inn frekar en að ýta upp á fólk
  • Efni sem þú átt til nú þegar og getur nýtt
  • Hvaða efni hentar í markaðssetningunni þinni
  • Hvernig þú getur þú notað efni frá öðrum
  • Hvernig þú getur sett efnið fram - hinar ýmsu leiðir til framsetningar og fjöldi (almennt frírra) tækja og tóla til að gera það
  • Hvar og hvernig þú getur sent efnið út og deilt því
  • Að setja upp efnisdagatal
  • Hvernig þú getur komið þessu öllu í verk og sparað þér sporin
  • Ítarefni frá helstu sérfræðingum heims í efnismarkaðssetningu sem þú getur notað til að kafa enn dýpra ef þú vilt ;)

Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur rúmlega klukkustund að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer eftir umfangi rekstrar þíns, hversu mikið þú kýst að gera í efnismarkaðssetningu og hvernig stöðu þú varst í áður en þú hófst vinnuna. 
  • Vinnuskjal sem hjálpar þér að halda utan um efnismarkaðssetninguna.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.


Verð
kr. 21.700,-



Já takk, ég ætla að miðla frábæru efni til markhópsins míns og fá hann til að elska mig og velja mig fram yfir aðra!
Eitt stykki þjálfunarprógramm í efnismarkaðssetningu fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015