MaM
Picture

Rekur þú lítið eða meðalstórt fyrirtæki? 
Veistu ekki hvernig þú átt að snúa þér í markaðsmálunum? 
Viltu markaðsstarf sem kostar ekki handlegg, en skilar vel í kassann?
Viltu fá skýrt prógramm sem þú getur fylgt eftir og náð árangri?

Viltu spara þér tíma og peninga og ná betri árangri?

Þá ertu á réttum stað!


Picture

Ég hef unnið með tugum íslenskra og erlendra fyrirtækja í markaðsstarfinu með frábærum árangri og veit nákvæmlega hvað þú þarft að gera til að taka markaðsmálin föstum tökum.

Ég þróaði MáM þjálfunina til að geta aðstoðað fleiri á hagkvæmari hátt, en MáM stendur fyrir Markaðsmál á mannamáli.


Þú getur fengið að vita allt um mig á síðunni minni, thoranna.is, og á LinkedIn.
Picture
Picture

Ég hef fjallað um markaðsmál í hinum ýmsu fjölmiðlum, á borð við...

Picture
Picture
Picture
Picture
Picture

MáM þjálfunin sýnir þér skref-fyrir-skref á praktískan hátt hvernig þú getur...

  • Fundið það fólk sem er líklegast til að kaupa og nálgast það á réttum stöðum og með réttum skilaboðum
  • Skotið samkeppninni ref fyrir rass
  • Byggt upp "brand" sem fær fólk til að elska þig og vilja ekki skipta við samkeppnina
  • Fundið réttu markaðsaðgerðirnar fyrir þig og látið þær spila saman til að ná sem bestum árangri
  • Komið skipulagi á markaðsstarfið til að þú náir að sinna því samhliða öllu öðru sem þú þarft að gera!

MáM þjálfunin fer algjörlega fram yfir netið, svo þú getur farið í gegnum efnið hvar sem þú vilt, og hvenær sem þér hentar.

Picture
Picture

Hér er það sem þú færð út úr MáM þjálfuninni

Picture
Picture
Picture
Picture
Picture

Picture
“Eftir að ég fór í gegnum grunnþjálfunina hjá MáM þá fékk ég skýrari sýn á markaðsstefnu og brandið fyrir mitt fyrirtæki og góðar ábendingar varðandi samfélagsmiðla sem ég gæti nýtt til að koma vörunni minni á markað.  Ég fékk fullt af góðum punktum í endurgjöfinni sem munu svo sannarlega nýtast mér vel og hjálpa mér að koma góðu skipulagi á hlutina.”

Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Dimmblá


Picture
"Þegar ég fór sjálf að gera tilraun til að kortleggja og skipuleggja markaðsstarfið fyrir sprotafyrirtækið mitt upp á eigin spýtur týndist ég í hafsjó af tvítum, lækum, pinnum, kommentum.....og hvað svo með branding, samkeppni, sérstöðu......mér féllust hendur! Þóranna gaf mér vonina á ný :) Ég fór í gegnum þjálfunarkerfið hennar og það hjálpaði mér velja tólin sem pössuðu mínu fyrirtæki, skilja hvernig þau virka og hvernig best er að ná árangri með hvert og eitt. Einnig fannst mér mikil hjálp í því hvernig kerfið leiðir mann áfram skref af skrefi og lætur mann takast á við markaðssetninguna í rökréttri röð. Núna finnst mér markaðsstarfið ekki lengur óyfirstíganlegur hjalli, heldur skemmtileg áskorun.

Takk Þóranna fyrir að vera á vaktinni fyrir mig og miðla til mín hnitmiðuðum og árangursríkum leiðum sem ég hef ekki tíma né peninga til að finna. Þú ert snillingur."

Eyrún Eggertsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri RóRó


Já takk, skrá mig núna!

Taktu markaðsmálin föstum tökum og náðu árangri!

Verð 97.700,-*



Greiðslur dreifast á 6 mánuði. Athugaðu að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við þjálfunina. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
*Með því að smella á "Versla" hnappinn og ganga frá greiðslu hefur þú staðfest skráningu í grunnþjálfun MáM sem greiðist með greiðslukorti í 6 hlutum með mánaðar millibili. Aðgangur verður veittur næsta virkan dag. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður. Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

Hvað segir fagfólkið?

Picture
"MáM þjálfunin frá Þórönnu er VERULEGA FLOTT og by far flottasta og faglegasta marketing efnið sem ég hef séð á íslensku! Það er engin spurning að það gefur minni fyrirtækjum forskot á markaði að vinna svona faglega að markaðssetningunni hjá sér. 
Mæli óhikað með MáM".

Kári Þór Rúnarsson
M.Sc. Advanced Marketing Management, framkvæmdastjóri Marketing.is og fyrrum Viðskiptaþróunarstjóri hjá Clara

Picture
"Í nútíma viðskiptum þarfu ekki að vera stór til að ná árangri, það sem þarf er að sinna markaðs- og sölumálum í takt við nýja tíma.  Þóranna hjá Markaðsmál á mannamáli býður þjónustu sem öll  fyrirtæki ættu að nýta sér.  

Ástæðan er einföld, þjónustan byggir upp þekkingu hjá þér sem ekki bara leiðir til árangurs heldur til beins sparnaðar í þínum rekstri.  

Ég veit að þetta hljómar eins og voodoo - en þú eyðir minna og uppskerð meira!"

Halldór Már Sæmundsson, Partner Sales Executive, Microsoft

Picture
"Þóranna er ekki bara ástríðufullur markaðsnörd sem talar mannamál. Með þjónustupakkanum hennar á netinu gefur hún metnaðarfullum litlum og meðalstórum fyrirtækjum einstakt tækifæri á að nálgast, læra og tileinka sér hvað þarf til að skipuleggja og byggja upp sterkt og eftirtektarvert brand." 

Rúna Magnúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Connected-Women.com, meðstofnandi verðlauna prógrammsins BRANDit, höfundur verðlaunaþjálfunarinnar "Discover Your X-Factor", ACC alþjóðlega vottaður stjórnendamarkþjálfi og fyrirlesari og situr í stjórn Association of Transformational Leaders in Europe.


Það sem við förum yfir...

Picture
  • Hvaða gagn er að því að gera markhópagreiningu - en þú veist það þegar þú ert búinn að horfa á vídeóið hér til hliðar ;)
  • Við komum skipulagi á greininguna og áttum okkur á hvernig landið liggur á þínum markaði.
  • Við skoðum hver draumaviðskiptavinurinn þinn er - því að við viljum jú finna fleiri svoleiðis ;)
  • Við skoðum hverjir koma að því að ákveða hvort og hvað á að kaupa og hvaða áhrif það hefur fyrir þig.
  • Ef þú ert með mjög marga mögulega markhópa þá skoðum við hverjum þú átt að vera að einbeita þér að.
  • Við skilgreinum hópana þína, hvort sem þeir eru á einstaklings- eða fyrirtækjamarkaði.
  • Við köfum dýpra og kynnumst markhópunum þínum og aukum skilning okkar á þeim, því þannig getur þú haft samband við þá á áhrifaríkari hátt.
  • Við skoðum hver þörf þeirra er og hver ávinningur þeirra er af því að velja okkur því þar liggja sterk markaðsskilaboð.
  • Við skoðum gildi þeirra og lífssýn - hvað skiptir þau virkilega máli? - þar liggur lykillinn að virkilega sterku sambandi við þau.
  • Við skoðum hvar við náum til þeirra og hvernig best er að ná til þeirra - því annars erum við bara að tala við sjálf okkur.
  • Við setjum fram kaupendapersónuna þína, gagnlegt tól til að tryggja að allir þeir sem þurfa geti skilið hver markhópurinn þinn er og séu þar með betur í stakk búnir að hjálpa þér að ná til þeirra.
  • Svo skoðum við hvernig við höldum þessari þekkingu kerfisbundið við.

Kíktu á fyrsta vídeóið úr efninu um markhópana

Kíktu á fyrsta vídeóið úr efninu um samkeppnina
Picture
  • Af hverju að skoða samkeppnina? - en þú veist það þegar þú ert búinn að horfa á vídeóið hér til hliðar ;)
  • Hver samkeppnin er - það er oft ekkert augljóst hverja við eigum að flokka sem samkeppnisaðila og hverja ekki.
  • Hvað við þurfum að vita um samkeppnisaðilana.
  • Hvar við getum komist að upplýsingum um þá.
  • Hvernig við getum fengið sem besta yfirsýn yfir þann samkeppnismarkað sem við störfum á.
  • Hvernig við getum haldið áfram að fylgjast kerfisbundið með samkeppninni.

Picture
  • Hvað er brand og hvað það gerir fyrir þig (smá uppljóstrun: brandið er öflugasta markaðstólið!)
  • Þú ferð í smá naflaskoðun - hvernig staðan er hjá þér í dag?
  • Finnum út hver brand kjarninn þinn er, hólfið sem þú ert í - fyrir hvað ertu þekkt(ur)?
  • Finnum út  hver þú vilt að brand persónuleikinn þinn sé.
  • Finnum út hvað þú vilt að fólk hugsi og finnist um brandið þitt.
  • Setjum upp plan um hvernig þú getur komið brandinu til skila, bæði persónuleikanum og öðrum eiginleikum.
  • Áttum okkur á hvert virði brandsins er fyrir viðskiptavininn og af hverju það skiptir máli - þarna liggja sterk markaðsskilaboð.
  • Förum yfir hvernigþú getur stýrt brandinu í framhaldinu og byggt upp öflugt brand til framtíðar.
Kíktu á fyrsta vídeóið úr efninu um brandið

Kíktu á vídeóið hér fyrir ofan um markaðsferlið
Picture
  • Skoðum ýmsa hluti sem hafa þarf í huga við val á markaðsaðgerðum.
  • Förum í gegnum markaðsferlið til að skilja það hugsanaferli sem fer fram áður en fólk ákveður að kaupa (kíktu á vídeóið hér til hliðar ;)
  • Förum í gegnum hvernig við þurfum að stilla saman markaðsaðgerðum til að ná hámarks árangri og hafa sem mest áhrif.
  • Farið er yfir fjölda markaðsaðgerða og hvernig þú ákveður hvaða markaðsaðgerðir eru réttar fyrir þig.
  • Markaðsaðgerðirnar eru flokkaðir í 5 flokka:
        - markaðsaðgerðir sem þú verður að fara í sem fyrst
        - aðrar markaðsaðgerðir sem þú verður að fara í en eru ekki í forgangi
        - helstu samfélagsmiðlar og hvernig þú getur vitað á hverjum þú átt að                 vera og hverjum ekki
        - ýmsar fleiri markaðsaðgerðir sem líklegt er að þú gætir nýtt þér
        - fullt af hugmyndum til að eiga í pokahorninu
  • Fjöldi dæma um hvernig setja má saman markaðsaðgerðir fyrir hina ýmsu starfsemi, þ.á.m. starfsemi eins og þína (svo lengi sem ég fæ upplýsingar um í hvaða starfsemi þú ert).

Picture
  • Við skoðum hvaða daga og viðburði geturðu notað í markaðsstarfinu þínu.
  • Hvaða stóru verkefni þarf að vinna og hvernig er best að skipuleggja það.
  • Hvað þarf að gera reglulega.
  • Þú setur þetta allt saman upp í markaðsdagatal.
  • Þú setur upp verkáætlun.
  • Þú lærir hvernig þú getur notað Google Calendar til að halda utan um markaðsstarfið.
  • Þú lærir hvernig þú getur hætt að finna upp hjólið og komið hlutunum í skilvirkt kerfi - heldurðu að það verði ekki lúxus að þurfa ekki að hlaupa um eins og hauslaus hæna að reyna að finna næsta markaðstrixið þitt?! ;)
Kíktu á fyrsta vídeóið úr efninu um markaðskerfið

BÓNUSAR!

Picture

Vinnuskjöl

Vinnuskjöl með hverjum hluta sem þú getur prentað út, eða unnið með í tölvunni.
Picture

Umræðuhópur á Facebook

Ræddu málin við aðra þátttakendur, spyrjið spurninga og hjálpið hverju öðru auk þess sem ég lít inn reglulega til að svara spurningum. Hópurinn er lokaður og aðeins í boði fyrir þá sem hafa tekið eða eru að taka MáM grunnþjálfunina eða MáM Bootcamp.
Picture

Aðgangur að mér

Umræðuhópsins geturðu alltaf pantað tíma í ráðgjöf hjá mér á sérstökum þjálfunarkjörum (kr. 10.700 + vsk, annars 12.900). Ég býð ekki upp á staka ráðgjafatíma fyrir aðra en þá sem eru í eða hafa farið í gegnum MáM þjálfunina.

Picture

Frítt stakt þjálfunarprógramm

Þú getur valið þér eitt stakt MáM þjálfunarprógramm eftir að þú hefur lokið MáM grunnþjálfuninni - frítt! Stöku MáM prógrömmin eru:
  • Brand útlit og tónn
  • Undirbúningur að vefsíðugerð
  • Efnismarkaðssetning
  • Að ná í fjölmiðlaumfjöllun


Picture

Markaðsráðgjafinn í tölvunni - framhaldsþjálfun MáM

Framhaldsþjálfun MáM er eingöngu í boði fyrir þá sem hafa lokið grunnþjálfun hjá MáM eða MáM Bootcamp

Hvað er innifalið í framhaldsþjálfuninni?
  • Öll stök MáM prógrömm (sjá hér fyrir ofan)
  • Upplýsingar um öll helstu markaðstól og tæki - sjáðu yfirlitið hér
  • Getur alltaf spurt í gegnum netið
  • Áframhaldandi þátttaka í umræðuhópnum á netinu
  • Getur pantað tíma í ráðgjöf á þjálfunarkjörum

Þú er í raun alltaf með markaðsráðgjafann til taks í tölvunni!

Fyrir hvern er MáM þjálfunin?

Picture

Eigendur lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Þú átt þitt eigið fyrirtæki sem gengur allt í lagi. Þú veist að þú getur náð betri árangri ef þú tekur markaðsmálin fastari tökum en veist bara ekki hvar þú átt að byrja og hefur ekki tíma fyrir óþarfa blaður og fræðimennsku. Þú ert búin(n) að prófa eitt og annað og eyða peningum í allskonar hluti sem ekki virka. Þú vilt ná hámarks árangri með lágmarks tilkostnaði. Þú ætlar kannski ekki að sjá um þetta allt sjálf(ur) en þú veist að þú þarft að skilja þetta og koma þessu í farveg áður en þú færð fleiri í lið með þér í markaðsstarfinu og vilt hafa sérfræðing til taks þegar á þarf að halda.


Markaðsfólk í litlum og meðalstórum fyrirtækjum

Þú sérð um markaðsmálin fyrir lítið eða meðalstórt fyrirtæki. Þú hefur jafnvel menntun í viðskipta- og/eða markaðsfræðum, en vantar praktísk tól og tæki, endurgjöf og speglun á það sem þú ert að gera. Þú vilt fá praktískar leiðir til að taka þetta föstum tökum og ná meiri árangri og hafa sérfræðing í bakhöndinni þegar á þarf að halda.


Picture
Picture

Frumkvöðla og þá sem eru að hefja rekstur

Þú ert nýlega farin(n) af stað með fyrirtækið þitt, eða ert búin(n) að vera í rekstri í einhvern tíma og vilt fá meira út úr markaðsstarfinu. Þú veist að markaðsmálin skipta máli og vilt taka þau föstum tökum og gera hlutina rétt frá byrjun - og þú vilt vita hvað þú átt að vera að gera og hvað ekki. Þú hefur ekki mikla peninga til að eyða í markaðsstarfið og það verður að virka. Þú ætlar þér að fá einhvern með þér í markaðsmálin í framtíðinni en þarft að sjá um þau sjálf(ur) núna og gerir þér grein fyrir því að þú sem eigandinn verður að hafa góðan skilning á þeim.


Já takk, skrá mig núna!

Taktu markaðsmálin föstum tökum og náðu árangri!

Verð 97.700,-*


Greiðslur dreifast á 6 mánuði. Athugaðu að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við þjálfunina. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
*Með því að smella á "Versla" hnappinn og ganga frá greiðslu hefur þú staðfest skráningu í grunnþjálfun MáM sem greiðist með greiðslukorti í 6 hlutum með mánaðar millibili. Aðgangur verður veittur næsta virkan dag. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður. Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

Viltu þéttara prógramm og meiri aðhald og stuðning? Þá gæti MáM Bootcamp verið eitthvað fyrir þig! Kynntu þér málið hér!

Picture

Algengar spurningar og svör

  • Hvað tekur þetta mikinn tíma?
Fyrri þátttakendur hafa metið svo að þeir verji um 50 klst alls í þjálfunina.  Í þjálfuninni er bæði myndefni og  texti og eru hlutarnir um markaðsaðgerðir og markaðskerfið að mestu leyti texti. Hversu mikinn tíma þín vinna tekur fer allt eftir því á hvaða stað þú ert að byrja, hversu flókinn reksturinn þinn er, vöruúrval og þjónusta og hversu dugleg(ur) þú ert að vinna í markaðsmálunum þínum.  

  • Ég hef ekki tíma í þetta - hvað þá?!
Fyrir markaðsstarfið þá þarftu annað hvort tíma eða peninga. Ef þú hefur peningana til þess að ráða þér starfsmann til að sjá um markaðsmálin, eða markaðsráðgjafa, þá er um að gera að drífa í því. Hinsvegar þarftu  alltaf að hafa grundvallar þekkingu og skilning á þeim og stýra þessu hjarta fyrirtækisins og það er kjarninn í MáM þjálfuninni. Gott markaðsfólk og góðir ráðgjafar, sem kunna til verka, eru heldur ekki á hverju strái og kosta sitt. Ef þú hefur ekki fjármunina í það, þá er tíminn þinn og orka hinn gjaldmiðillinn sem þú hefur til að efla markaðsstarfið. Þú getur ekki gert ekki neitt:  Ekkert markaðsstarf = engir viðskiptavinir = enginn rekstur. Það er bara ekki flóknara en það.

  • Þarf ég einhver sérstök forrit eða eitthvað þar sem þetta er allt á netinu?
Nei. Þú þarft bara tölvu og góða nettengingu. Ég mæli með því að nota Google Chrome vafrann, en þú getur náð í hann frítt hér:  www.google.com/chrome/‎
Þú getur líka séð hér hvernig vefumhverfið fyrir þjálfunina er.

  • Ég er ekki tæknilega flink(ur) - get ég gert þetta þegar þetta er allt í gegnum netið?
Já, þetta er mjög einfalt. Vefumhverfið er notendavænt og ef þú getur notað Facebook og Word, þá áttu að vera í góðum málum í þessu :)

  • Hvað ef mér líst ekkert á þetta þegar prógrammið er byrjað?
Innan fyrsta mánaðarins þá barasta sendirðu mér línu og ég endurgreiði þér. En það er rétt að taka fram að MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að skrá sig.  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum. Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

  • Get ég ekki fundið allar þessar upplýsingar frítt á netinu?
Sjálfsagt gætirðu mögulega fundið brot hér og brot þar og fundið út úr þessu. En það mun taka þig mikinn tíma, mikla leit og mikla orku. Reyndar fór ég einmitt út í að þróa MáM þjálfunina vegna þess að ég fann ekkert svona á markaðnum. Það er fullt af hlutum um um samfélagsmiðlana, leitarvélabestun, auglýsingar á netinu o.fl. o.fl. en það vantar grunninn og það vantar að láta þetta spila saman. Markaðsmálin eru það sem ég vasast í allan daginn alla daga. Þetta er það sem elska að gera. Ég er búin að taka það sem ég hef lært í meistaranámi, markaðsstörfum frá því upp úr aldamótum, ráðgjöf og vinnu í markaðsmálunum með litlum og meðalstórum fyrirtækjum frá 2011, tveggja ára þróun á þjálfuninni, þ.á.m. með tveimur vöruþróunarhópum og á annan tug viðskiptavina, sem voru svo frábærir að bjóðast til að vera tilraunadýr fyrir efnið, og af því að markaðsnördast út í eitt og sjóða það saman í þetta prógramm til að tryggja að þú fáir að vita allt sem þú þarft að vita og sem þú þarft að gera. MáM sparar þér þannig heilmikinn tíma, orku, vinnu og hausverk.

  • Er þetta peninganna virði?
Já. Svo einfalt er það. Hvers virði er það að ná tökum á markaðsstarfinu og ná árangri? Hvers virði er það að auka viðskiptin og tekjurnar? Hvers virði er það að fá kerfi til að fylgja eftir og þurfa ekki lengur að hlaupa um eins og hauslaus hæna og elta þetta trikk í dag og hitt trikkið á morgun án þess að sjá árangur af því? Það er ekki til neins að vera með góða vöru eða þjónustu ef enginn kemur til að kaupa hana. Þannig að einfalda svarið er: Já. Og ef þú vilt fá það brotið niður, þá gæti það litið svona út:

  • MáM þjálfunarefnið á netinu: 97.700,- kr
  • Umræðuhópur: ómetanlegur!
  • Aðgangur að mér: ómetanlegur - og ekki í boði nema fyrir "innvígða" ;)
  • Frítt stakt MáM þjálfunarprógramm: 21.700,-
  • Sérkjör í framhaldsþjálfun - þú sparar: 60.000,-

Þannig að þú borgar 97.700,- fyrir pakka sem er klárlega a.m.k. uppundir 200 þúsund króna virði!

Fleiri spurningar? Kíktu hér!

Í lok MáM þjálfunarinnar er gerð könnun. 
Allir sem lokið hafa grunnþjálfun MáM hingað til hafa verið mjög ánægðir með þjálfunina
og myndu mæla með henni við aðra!
Ég er þess vegna fullviss um að þú átt eftir að verða ánægð(ur)!


Já takk, skrá mig núna!

Taktu markaðsmálin föstum tökum og náðu árangri!

Verð 97.700,-*


Greiðslur dreifast á 6 mánuði. Athugaðu að mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við þjálfunina. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi!
*Með því að smella á "Versla" hnappinn og ganga frá greiðslu hefur þú staðfest skráningu í grunnþjálfun MáM sem greiðist með greiðslukorti í 6 hlutum með mánaðar millibili. Aðgangur verður veittur næsta virkan dag. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður. Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is
Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015