MaM

Nafnaleit

Picture

Gott til undirbúnings:
  • Grunnþjálfun
  • Markhópar*
  • Samkeppnin*
  • Brand stefnumótun* 
  • Brand útlit og tónn

* innifalið í grunnþjálfun

Einnig hluti af:
  • Framhaldsþjálfun

"Name creation is too important to be relegated to a brainstorming session among a few insiders around a kitchen table ... 
a name is much more permanent than most other elements of a marketing program..."

- David A. Aaker

Oft er nafn fyrirtækisins, vörunnar, eða þjónustunnar það eina sem fólk heyrir, eða sér. Um leið og það er nefnt vakna huglægar tengingar og tilfinningar, jafnvel þó fólk sé að heyra eða sjá það í fyrsta skipti og að það hafi í raun enga þýðingu sem orð (s.s. Actavis eða Kodak). Nafn er því mikilvægt markaðstól. Ef þú átt enn eftir að finna nafn fyrir fyrirtækið þitt, vöru eða þjónustu, þá er MáM þjálfunin um hvernig á að finna nöfn eitthvað sem þú ættir að kynna þér. Nafnaleit er einnig fáanleg sem hluti af framhaldsþjálfun MáM.

Nafn er mjög mikilvægur hluti af markaðsstarfinu og því þarf að vera með markhópana og brandið á hreinu áður en fundið er nafn fyrir fyrirtækið, vöruna eða þjónustuna þína. Því er eindregið mælt með því að fara í gegnum þá hluta MáM þjálfunina áður en þetta prógramm er tekið.

Það sem við förum yfir í prógramminu er m.a.:
  • Mikilvægir hlutir sem hafa þarf í huga við nafnaleit
  • Ferli fyrir nafnaleit og síun á þeim hugmyndum sem koma fram
  • Hvað þarf að skoða þegar búið er að finna nöfn sem koma til greina
  • Hvernig nafn er skráð til að verja það fyrir notkun annarra


Innifalið í prógramminu:
  • Þriggja mánaða aðgangur að þjálfunarprógramminu sem virkjaður er samdægurs eða næsta virkan dag eftir kaup.
  • Það tekur ca.  40-45 mínútur að fara í gegnum allt efni prógrammsins, myndbönd og texta. Hversu langan tíma tekur þig að vinna með efnið fer einfaldlega eftir þér. 
  • Vinnuskjal fyrir nafnaleitarferlið og síunarferlið.
  • Ótakmarkað magn spurninga í gegnum vefsvæðið. ATH! Spurningar sem spurt er í gegnum vefinn og svörin við þeim eru birt á vefnum. Þær geta því ekki verið trúnaðarmál.
  • Þú getur pantað tíma í ráðgjöf sem þá er veitt gegnum Skype eða Google Hangouts. ATH! Stakir ráðgjafartímar eru eingöngu í boði fyrir þá sem eru í virkri þjálfun hjá MáM.


Verð
kr. 21.700,-



Já takk, ég ætla að finna akkúrat rétta nafnið fyrir fyrirtækið mitt, vöru eða þjónustu.
Eitt stykki þjálfunarprógramm í nafnaleit fyrir mig!

ATH! Sum stéttarfélög greiða hluta af verði þjálfunarinnar. Athugaðu málið hjá þínu stéttarfélagi ;)

Með því að smella á "Versla" hnappinn kaupir þú aðgang að ofangreindu þjálfunarprógrammi frá MáM.
Aðgangur verður veittur næsta virkan dag og gildir í þrjá mánuði. Allar nauðsynlegar upplýsingar um aðganginn verða sendar þegar hann er virkjaður.
Þegar þú ýtir á hnappinn ferðu á örugga greiðslusíðu hjá Dalpay og jafngildir það samþykki á skilmálum Atmos ehf. (f.h. Markaðsmála á mannamáli) sem þú getur lesið hér. Frekari upplýsingar: thoranna@mam.is

*100% endurgreiðsluábyrgð á meðan aðgangurinn þinn er í gildi. ATH! MáM þjálfunin er ekki töfralausn. Alveg eins og það er ekki nóg að kaupa kort í ræktina, þá er ekki nóg að kaupa áskrift ;)  Árangurinn byggist á því að nýta efnið, vinna verkefnin, og vinna markvisst í markaðsstarfinu þínu. Þú þarft að leggja til tíma, vinnu og orku til að MáM þjálfunin beri árangur. Ég get ekki ábyrgst að þú náir árangri með þeim leiðbeiningum, upplýsingum og tillögum sem felast í MáM. Ég þekki ekki þig, né reksturinn þinn, og árangur þinn byggist einfaldlega á þér sjálfri/sjálfum - ekki satt? Ég mun hinsvegar gera mitt allra besta með því að veita þér mínar bestu upplýsingar, leiðbeiningar og ráð til þess að markaðsstarfið þitt megi verða sem árangursríkast og öflugast og veita þér sem allra best og mest viðskipti. Því get ég lofað :)

Fyrirvari
Hafðu samband
Skilmálar
Thoranna.is 
Bloggið
© Þóranna K. Jónsdóttir, 2015