MáM þjálfunin
MáM þjálfunin leiðir þig skref fyrir skref í gegnum það sem þú þarft fyrir markaðsstarfið þitt á hagnýtan og aðgengilegan hátt. Allt efnið er á netinu, þegar þér hentar, og þú getur bæði spurt spurninga gegnum netið og pantað tíma í frekari ráðgjöf. Viltu sjá hvernig þjálfunarumhverfið er? Kíktu hér inn og þá sérðu hvernig þetta virkar en ATH! efnið er nú komið í mun betra vefumhverfi :)
Ferlið sem liggur til grundvallar MáM þjálfuninni er einfalt:
HÉR ERU PRÓGRÖMMIN:
MáM Bootcamp!Sjá allt um MáM Bootcamp hér!
Í Bootcamp er farið yfir:
|
Þetta er prógrammIÐ! Þarna er farið í allt það sem þú þarft til að byggja upp öflugt markaðsprógramm!
|
Stök þjálfunarprógrömm
Við mælum eindregið með því að ljúka grunnþjálfun MáM (Bootcamp) áður en farið er í þessi stöku þjálfunarprógrömm, þar sem sterkur grunnur er lykilatriði til að hinar ýmsu markaðsaðgerðir vinni sem allra best fyrir þig!
Brand útlit og tónn![]() Að hverju þarf að huga þegar hannað er útlit fyrir brandið þitt, markaðsefni þess og annað? Hvernig geturðu best undirbúið þig svo útlitið og efnið verði sem áhrifaríkast, taki sem stystan tíma og kosti sem minnst? Hvernig get ég stýrt hlutunum í framhaldinu svo markaðsefnið mitt vinni sem best fyrir mig? Farið er yfir allt þetta og fleira til sem tryggir að brand útlitið og tónninn í brandinu þínu séu sem áhrifaríkust. Þessi vinna mun gera vinnuna þína með grafískum hönnuði mun markvissari, hún mun taka styttri tíma og verða ódýrari fyrir vikið.
Kynntu þér MáM þjálfun um brand útlit og tón hér |
Undirbúningur að vefsíðugerð![]() Að hverju þarf að huga þegar farið er í vefsíðugerð? Hvernig getur þú sem best undirbúið þig til að vinnan með vefhönnuði og vefgerðarfólki verði sem árangursríkust, taki sem stystan tíma og verði sem hagstæðust? Markmiðið er að þú getir undirbúið þig sem best fyrir þessa vinnu og fengið sem áhrifaríkastan vef. Einnig er bent á einfaldar og ódýrar leiðir til að setja upp vef á eigin spýtur.
Kynntu þér MáM þjálfun í undirbúningi að vefsíðugerð hér |
Efnismarkaðssetning![]() Hvaða efni á ég að senda út á Facebook, Twitter, LinkedIn, Pinterest o.s.frv. Hvað á ég að blogga um og hvað get ég sent fólki á póstlistanum mínum? Markaðssetning í dag snýst stöðugt meira um að dæla út efni sem fólk hefur áhuga á en er um leið að vinna fyrir þig (e. content marketing). Þessi þjálfun afhjúpar trixin á bak við öfluga efnismarkaðssetningu ;)
Kynntu þér MáM þjálfun í efnismarkaðssetningu hér |
Að ná í fjölmiðlaumfjöllun![]() Fjölmiðlaumfjöllun er mjög sterkt markaðstól og almennt frí, svo hún hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum mjög vel. Til að ná í hana þarf hinsvegar að ganga markvisst og skipulega til verks og vita hvernig best er að bera sig að. Farið er yfir allt það helsta sem þú þarft að vita til að geta tekið málin í þínar eigin hendur og náð í fjölmiðlaumfjöllun sem vekur góða athygli á fyrirtækinu þínu, vöru eða þjónustu.
Kynntu þér MáM þjálfun í að ná í fjölmiðlaumfjöllun hér |
Nafnaleit![]() Oft er nafn fyrirtækisins, vörunnar, eða þjónustunnar það eina sem fólk heyrir, eða sér. Um leið og það er nefnt vakna huglægar tengingar og tilfinningar, jafnvel þó fólk sé að heyra eða sjá það í fyrsta skipti og að það hafi í raun enga þýðingu sem orð (s.s. Actavis eða Kodak). Nafn er því mikilvægt markaðstól og þetta prógramm fer yfir allt sem þú þarf að vita áður en þú velur nafnið þitt.
Kynntu þér MáM þjálfun í nafnaleit hér |
|
Prógrömm frá samstarfsaðilum MáM
Ég mæli heilshugar með þessum prógrömmum því þau eru frábær! Ég hef sjálf farið í gegnum þau og tala því af reynslu. Eins og með öll önnur markaðstól, þá nýtast þau best ef þú ert með markhópinn þinn og brandið á hreinu!
![]() Lærðu að nota Facebook í markaðssetningu með Amy Porterfield.
Til að nýta Facebook sem best verðurðu að þekkja markhópinn þinn og brandið vel! Það er tilvalið að taka MáM prógrammið í efnismarkaðssetningu með þessu! |
![]() Lærðu að nota LinkedIn í markaðssetningu og fleira með Lewis Howes.
Til að nýta LinkedIn sem best verðurðu að þekkja markhópinn þinn og brandið vel! Það er tilvalið að taka MáM prógrammið í efnismarkaðssetningu með þessu! |
![]() Lærðu að nota Pinterest í markaðssetningu með Melanie Duncan.
Til að nýta Pinterest sem best verðurðu að þekkja markhópinn þinn og brandið vel! Það er tilvalið að taka MáM prógrammið í efnismarkaðssetningu með þessu! Kynntu þér meira um Power of Pinning hér! Tölvupóstlistinn![]() Lærðu að nota tölvupóstlistann í markaðssetningu með Francisco Rosales.
Til að fá sem mest út úr markaðssetningu í gegnum tölvupóstlistann þarftu að þekkja markhópinn þinn og brandið vel! Það er tilvalið að taka MáM prógrammið í efnismarkaðssetningu með þessu! |
Vídeó og YouTube![]() Lærðu að nota vídeó og YouTube í markaðssetningu með James Wedmore.
Til að nýta vídeó og YouTube sem best verðurðu að þekkja markhópinn þinn og brandið vel! Það er tilvalið að taka MáM prógrammið í efnismarkaðssetningu með þessu! Kynntu þér meira um Video Traffic Academy hér! Fleiri námskeið og ýmislegt gagnlegt fyrir markaðsstarfið í Marketing Untangled Store hér! |